Fréttir og tilkynningar


Tölulegar upplýsingar um álagningu einstaklinga 2021

31.5.2021

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2021, á tekjur ársins 2020. Tekjuskattur og útsvar hafa að mestu þegar verið innheimt í staðgreiðslu en í álagningunni fer fram endanlegt uppgjör þessara skatta.

Þar að auki er lagt á útvarpsgjald, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og tryggingagjald, sem lagt er á einstaklinga með rekstur í eigin nafni. Við álagningu eru einnig ákvarðaðar barna- og vaxtabætur, auk sérstaks barnabótaauka á árinu 2021.

Hinn 1. júní nk. verða inneignir samkvæmt niðurstöðum álagningar lagðar inn á bankareikninga þeirra gjaldenda sem eiga inni hjá ríkissjóði.

Fjöldi framteljenda og áætlaðir aðilar

Framteljendum á skattgrunnskrá fækkar aðeins milli ára, en á grunnskrá voru nú 312.513 einstaklingar, 825 færri en fyrir ári sem er fækkun um 0,3%. Ástæðan er sú að færri erlendir starfsmenn komu til vinnu á Íslandi á árinu 2020, vegna COVID-19. Skattar 18.169 einstaklinga voru áætlaðir en það er um 5,81% af heildarfjölda. Undanfarin ár hafa skattskil farið batnandi en áætluðum fækkaði nú um 1.671 á milli ára.

Rafræn framtalsgerð

Ríkisskattstjóri hefur í gegnum tíðina leitast við að bæta þjónustu við framteljendur. Nú er orðið mun auðveldara fyrir flesta að telja fram til skatts þar sem framtöl eru að mestu leyti unnin rafrænt og samskipti við framteljendur fara að miklu leyti fram á netinu. Betri skil gagna og aðstoð við framteljendur hafa fækkað villum og einfaldað framtalsgerðina fyrir all flesta. Hefðbundin pappírsframtöl heyra sögunni til en nú skiluðu 99,77% framteljenda rafrænu skattframtali.

Framlagning álagningarskrár og kærufrestur

Álagningarskrá einstaklinga verður lögð fram þriðjudaginn 17. ágúst og liggur frammi í 15 daga, til og með 31. ágúst.

Kærufrestur vegna álagningarinnar rennur út þann 31. ágúst nk.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum