Fréttir og tilkynningar


Tölulegar upplýsingar um álagningu einstaklinga 2024

31.5.2024

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga 2024, á tekjur ársins 2023. Tekjuskattur og útsvar hafa að mestu þegar verið innheimt í staðgreiðslu en í álagningunni fer fram endanlegt uppgjör þessara skatta.

Þar að auki er lagt á útvarpsgjald, gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa og tryggingagjald, sem lagt er á einstaklinga með rekstur í eigin nafni. Við álagningu eru einnig ákvarðaðar barna- og vaxtabætur.

Þann 31. maí verða inneignir samkvæmt niðurstöðum álagningar lagðar inn á bankareikninga þeirra gjaldenda sem eiga inni hjá ríkissjóði.

Fjöldi framteljenda og áætlaðir aðilar

Framteljendum á skattgrunnskrá fjölgar á milli ára, en á grunnskrá voru nú 344.701 einstaklingar, 12.632 fleiri en fyrir ári sem er fjölgun um 3,80%. Skattar 22.554 einstaklinga voru áætlaðir en það er um 6,54% af heildarfjölda á grunnskrá. Hlutfall áætlana nú er ívið meira en í fyrra, en þá var áætlað á 5,94% framteljenda.

Rafræn framtalsgerð

Ríkisskattstjóri hefur í gegnum tíðina leitast við að bæta þjónustu við framteljendur. Nú er orðið mun auðveldara fyrir flesta að telja fram til skatts þar sem framtöl eru að mestu leyti unnin rafrænt og samskipti við framteljendur fara að miklu leyti fram á netinu. Betri skil gagna og aðstoð við framteljendur hafa fækkað villum og einfaldað framtalsgerðina fyrir all flesta. Hefðbundin pappírsframtöl heyra sögunni til en nú skiluðu 99,78% framteljenda rafrænu skattframtali.

Framlagning álagningarskrár og kærufrestur

Álagningarskrá einstaklinga verður lögð fram mánudaginn 19. ágúst og liggur frammi í 15 daga, til og með 2. september.

Kærufrestur vegna álagningarinnar rennur út þann 2. september nk.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum