Fréttir og tilkynningar


Tölulegar upplýsingar um álagningu lögaðila 2022

31.10.2022

Skatturinn hefur lokið álagningu opinberra gjalda 2022 á lögaðila og liggja niðurstöður álagningarinnar nú fyrir.

Fjöldi lögaðila á skattgrunnskrá á landinu öllu við lok álagningar 2022 var 67.767 en þar af voru 50.195 skattskyld félög og sameignarfélög og 17.572 lögaðilar sem undanþegnir eru tekjuskatti. Fyrir lok álagningar höfðu 43.377 framtöl borist eða 86,42% framtala. Í fyrra höfðu 86,08% framtala borist fyrir lok álagningar. Gjöld 7.182 lögaðila voru áætluð sem er 14,31% lögaðila á skattgrunnskrá. Fyrir ári voru gjöld 13,85% lögaðila á skattgrunnskrá áætluð.

Alls voru 218.294.143.980 kr. lagðar á lögaðila í opinber gjöld sem er 38.027.657.599 kr. eða 21,10% hærri fjárhæð en lagt var á í fyrra. Þá má geta þess að 10.888.882.821 kr. voru endurgreiddar nýsköpunarfyrirtækjum vegna rannsóknar- og þróunarkostnaðar sem var 1.173.430.946 kr. meira en var endurgreitt í fyrra. Auk þess gekk 714.597.867 kr. skattfrádráttur til nýsköpunarfyrirtækja upp í álagðan tekjuskatt þeirra (innifalið í fjárhæð tekjuskatts hér að neðan).

Skipting opinberra gjalda lögaðila 2022 er þannig:

Gjald Fjárhæð Breyting
Tryggingagjald 102.291.971.410 5,41%
Tekjuskattur 100.300.586.480 44,95%
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki 5.335.883.561 11,54%
Fjársýsluskattur 3.366.495.175 9,14%
Sérstakur fjársýsluskattur 4.014.373.213 114,37%
Fjármagnstekjuskattur 2.052.671.046 -40,10%
Útvarpsgjald 880.328.800 8,79%
Jöfnunargjald alþjónustu 51.834.295 8,19%
Samtals 218.294.143.980 21,10%
     
Endurgreiðsla vegna rannsóknarkostnaðar 10.888.882.821 12,08%

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum