Fréttir og tilkynningar


Umsókn um leiðréttingu á fyrirframgreiðslu barnabóta

31.1.2019

Fyrirframgreiðsla barnabóta nemur 50% af áætluðum barnabótum ársins og greiðist með tveimur jöfnum greiðslum, 1. febrúar og 1. maí. Miðað er við fjölskyldustöðu samkvæmt Þjóðskrá eins og hún er 31. desember árið á undan. 

Við útreikning á skerðingu er miðað við upplýsingar um tekjur í staðgreiðslu að viðbættum upplýsingum um tekjur utan staðgreiðslu af framtali. Viðmiðunartímabil tekna í staðgreiðslu er frá nóvember til nóvember og tekjur utan staðgreiðslu eru teknar af síðasta skattframtali.

Forsendur fyrir útreikningi barnabóta hvers og eins er að finna á þjónustusíðu RSK, eftir innskráningu undir flipanum „samskipti“.

Séu aðstæður einstaklings aðrar en forsendur útreiknings gera ráð fyrir má óska eftir leiðréttingu á fyrirframgreiddum barnabótum. Algengar breytingar á högum sem geta gefið tilefni til leiðréttingar á fjárhæð barnabóta í fyrirframgreiðslu eru m.a.:

  • Tekjur
  • Skilnaður/samvistarslit
  • Óskráð sambúð
  • Ný sambúð
  • Maki búsettur og/eða starfar erlendis

Sótt er um leiðréttingu með því að fylla út og skila til RSK eyðublaði RSK 3.18 fyrir 28. febrúar n.k.

Þá er einnig hópur fólks sem ekki fær sjálfkrafa útreikning á fyrirframgreiðslu barnabóta en getur sótt um leiðréttingu með eyðublaði RSK 3.18.  Ástæður þess geta verið m.a.:

  • Námsmenn erlendis
  • Framtal fyrra árs ekki skilað inn
  • Flutningur milli landa
  • Aðsetur skráð erlendis
  • Hjón ekki samvistum
  • Hjúskaparstaða óþekkt m.v. skráningu í Þjóðskrá
Sé óskað eftir leiðréttingu verður leiðrétt fjárhæð barnabóta greidd út þegar beiðni hefur verið tekin til afgreiðslu. Beiðnir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er eftir að þær berast.


Eyðublað RSK 3.18

Nánari upplýsingar um barnabætur

Reiknivél barnabóta


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum