Uppgjör skemmtiferðaskipa á innviðagjaldi og gistináttaskatti

8.5.2025

Rekstraraðilum skemmtiferðaskipa ber að standa skil á gistináttaskatti eða innviðagjaldi vegna farþega um borð í skemmtiferðaskipum við Ísland. Gistináttaskattur er lagður á vegna innanlandssiglinga en innviðagjald vegna millilandasiglinga.

Innanlandssiglingar

Vegna farþega um borð í skemmtiferðaskipum í innanlandssiglingum þarf að standa skil á gistináttaskatti kr. 400 fyrir hvern byrjaðan sólarhring. 

Millilandasiglingar

Greiða skal innviðagjald kr. 2.500 fyrir hvern farþega um borð í skemmtiferðaskipi í millilandasiglingum á meðan skip er í höfn hér á landi eða annars staðar á tollsvæði Íslands. 

Uppgjörstímabil og senda inn skýrslur

Eigi síðar en á gjalddaga skulu rekstraraðilar skemmtiferðaskipa ótilkvaddir skila Skattinum skýrslu um fjölda farþega á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins til innheimtumanns ríkissjóðs. Skýrslum er skilað rafrænt á þjónustuvef Skattsins.

Uppgjörstímabil gisitnáttaskatts er það sama og hjá öðrum aðilum sem skylt er að leggja á gistináttaskatt.
Sjá kafla um uppgjör og gjalddaga gistináttaskatts

Uppgjörstímabil innviðagjalds telst vera sá tími sem skipið er innan tollsvæði Íslands hverju sinni. Gjalddagi er sjö dögum eftir að skip yfirgefur tollsvæðið. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um skatta og gjöld sem lögð eru á skemmtiferðaskip

Gistináttaskattur og innviðagjald á skemmtiferðaskip


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum