Vanskráningargjald vegna kílómetragjalds
Eigendur ökutækja sem ekki höfðu skráð kílómetrastöðu 1. apríl fengu lagt á sig vanskráningargjald. Gjaldið fellur niður ef farið er með ökutækið á skoðunarstöð fyrir lok apríl.
Í lögum um kílómetragjald á ökutæki er kveðið á um að skrá þurfi kílómetrastöðu á akstursmæli ökutækja einu sinni á ári. Þá segir jafnframt að ef skráning á akstursstöðu liggur ekki fyrir 1. apríl 2026 þurfi að láta skrá kílómetrastöðu hjá faggiltri skoðunarstofu ökutækja. Jafnframt kemur fram að við sömu tímamörk skuli leggja á 20.000 kr. vanskráningargjald.
Gjald fellur niður ef kílómetrastaða er skráð innan 30 daga
Ef engin skráning hefur verið gerð fyrir 1. apríl verður að fara með bílinn á skoðunarstöð til að láta lesa af mælinum. Vanskráningargjald fellur niður ef þú mætir á skoðunarstöð innan 30 daga frá álagningu gjaldsins.
Ef þú skráðir 1. apríl
Eigendur ökutækja sem skráðu kílómetrastöðu þann 1. apríl síðastliðinn en fengu samt álagt vanskráningargjald fá gjaldið fellt niður og þurfa ekki að fara með ökutæki sín á skoðunarstöð.
Nánari upplýsingar um kílómetragjald
Fyrirspurnir um kílómetragjald má senda á km@skatturinn.is
