Fréttir og tilkynningar


Varað við netsvindli

21.8.2020

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur í dag varað við netsvindli sem sent hefur verið með sms-skilaboðum í nafni Skattsins. Í skilaboðunum er tilkynnt um meinta endurgreiðslu.

Rétt er að árétta að þessi skilaboð eru ekki frá embættinu komin. Því er beint til fólks að opna ekki viðhengi eða hlekki sem kunna að innihalda óværu og alls ekki gefa upp persónuupplýsingar af neinu tagi.

Hafi fólk fallið fyrir þessu þá þarf, skv. leiðbeiningum lögreglunnar, að láta loka kortinu hjá viðkomandi kortafyrirtæki. 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum