Villa við bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds

29.6.2026

Ákveðinn hópur ökutækjaeigenda fékk bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds fyrir júní 2026 vegna ökutækis sem þeir seldu fyrr á árinu. Um er að ræða kerfisvillu sem verður leiðrétt.

Leiðrétting mun taka nokkra daga en krafa vegna kílómetragjalds ætti að uppfærast fyrir eindaga þann 15. júlí nk. Þau sem fengu ranga bráðabirgðagreiðslu vegna framangreindrar villu eru því beðin um að bíða með að greiða kröfu vegna kílómetragjalds þar til búið er að leiðrétta villuna og uppfæra kröfur. 

Þau sem hafa nú þegar greitt rangar kröfur munu fá inneign vegna rangrar bráðabirgðagreiðslu á viðkomandi ökutæki. 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum