Álagningarskrá einstaklinga vegna tekjuársins 2025 lögð fram
Álagningarskrá vegna álagningar á einstaklinga á árinu 2026 vegna tekjuársins 2025 er til sýnis frá 17. ágúst til 31. ágúst að báðum dögum meðtöldum.
Skrá yfir álagða skatta á tekjur einstaklinga er til sýnis á almennum starfsstöðvum Skattsins utan Reykjavíkur, en í Reykjavík að Katrínartúni 6.
Óheimilt er að eiga við skrána, taka afrit með rafrænum hætti eða ljós- eða hreyfimyndir.
