Lokaskiladagur skattframtals lögaðila er 21. september
Nú styttist í lokaskilafrest skattframtals lögaðila vegna rekstrarársins 2025, en álagning lögaðila fer fram 30. október næstkomandi.
Framtal 2026
Vakin er athygli á að lokaskiladagur lögaðila á skattframtali 2026, vegna rekstrarársins 2025, er 21. september næstkomandi. Ekki er tryggt að framtöl sem berast eftir skilafrest fái skoðun fyrr en eftir að álagning fer fram 30. október og eru þau sem eru í forsvari fyrir lögaðila hvött til að senda framtöl inn sem allra fyrst.
Nánari upplýsingar um framtal og álagningu lögaðila 2026
Hnappurinn
Stjórnendum örfélaga er sérstaklega bent á að kynna sér „Hnappinn“, en það er einföld og þægileg lausn fyrir smærri félög til að skila ársreikningi til birtingar í Ársreikningaskrá. Eftir að örfélag hefur skilað inn skattframtali er hægt að útbúa sjálfkrafa ársreikning sem byggður er á upplýsingum úr skattframtalinu.
