Birting álagningar einstaklinga 2025

19.5.2025

Niðurstöður álagningar einstaklinga 2025, vegna tekna 2024, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 22. maí. Inneignir verða greiddar út 30. maí og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.

Við álagningu eru gerðir upp ofgreiddir og vangreiddir skattar vegna fyrra árs auk þess sem lögð eru á gjöld s.s. útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra.

Opna þjónustuvef til að skoða niðurstöður álagningar

Inneignir verða greiddar út 30. maí

Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem skráður er hjá innheimtumönnum. Ef engar upplýsingar um skráðan bankareikning liggja fyrir er hægt að skrá nýjan eða breyta fyrri skráningu á þjónustuvef Skattsins.

Skuldir - dreifa greiðslu á lengra tímabil

Skuld eftir álagningu er skipt niður á allt að sjö gjalddaga. Innheimta skulda fer almennt í gegnum launagreiðendur. Þeim er send krafa um að draga skuld frá launum hvers mánaðar.

Gera greiðsluáætlun

Þau sem það vilja geta samið um að gera nýja greiðsluáætlun og skipta greiðslunni á lengra tímabil. 

Greiðsluáætlun er gerð til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði en á móti kemur hærri vaxtakostnaður.

Nánar um greiðsluáætlanir

Ferlið er aðgengilegt bæði á íslensku og ensku.

Innheimta hjá sjálfstætt starfandi og fólki ekki í vinnu

Þau sem ekki eru í vinnu eða starfa sjálfstætt fá sendan greiðsluseðil vegna innheimtu skatta eftir álagningu.

Leiðbeiningar

Útbúnar hafa verið stuttar leiðbeiningar um hvernig lesa megi úr álagningunni á íslensku, ensku og pólsku, sem og bæklingar á íslensku og ensku.

Forsendur fyrir álagningu gjalda sem lögð eru á árið 2025

Þjónusta

Nánari upplýsingar um niðurstöðu álagningar má fá með því að senda fyrirspurn eða hringja. Einnig getur spjallmennið Askur svarað ýmsum spurningum varðandi álagninguna og innheimtu.

Spurt og svarað

Rafræn skilríki og veflyklar

Niðurstöður álagningar eru aðgengilegar á þjónustuvef og þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil til innskráningar. Mögulegt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningarleið.

Upplýsingar um rafræn skilríki

Niðurstaða álagningar er ekki rétt, hvernig sendi ég inn leiðréttingu?

Niðurstöðu álagningar má kæra með því að senda inn beiðni um leiðréttingu. Eftir innskráningu á þjónustuvef skal velja "Framtal" og "Beiðni um leiðréttingu". Þar er hægt að gera grein fyrir þeim efnisatriðum sem þarf að breyta á framtalinu sem liggur til grundvallar og senda viðbótargögn máli þínu til stuðnings.

Þegar niðurstöður kærunnar liggja fyrir verður bréf sent í Stafræna pósthólfið á Ísland.is. 

Kærufrestur er til 1. september 2025

Opna þjónustuvef

Ég á eftir að skila framtali – hvað geri ég?

Framtal þeirra sem eiga eftir að skila er enn aðgengilegt á þjónustuvef. Þau sem eiga eftir að skila þurfa að skrá sig inn á þjónustuvef með rafrænum skilríkjum eða veflykli og skila framtalinu. 

Framtalið verður þá tekið fyrir sem kæra og er bréf sent í Stafræna pósthólfið á Ísland.is þegar niðurstaða liggur fyrir. 

Opna þjónustuvef

Hvers vegna skulda ég?

Því er ekki auðvelt að svara. Flest þurfa að greiða útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra. Ef þú skuldar umfram það eru hér nokkrar ástæður sem vert er að skoða hvort eigi við um þig.

  • Persónuafsláttur ofnýttur eða skattur greiddur í röngu skattþrepi, t.d. vegna greiðslna frá fleiri en einum launagreiðanda
  • Tilfallandi verktakagreiðslur
  • Styrkur sem ekki hefur verið færður frádráttur á móti.

Nánari upplýsingar um persónuafslátt

Nánari upplýsingar um skattþrep fyrir tekjuárið 2024

Ég skulda, er hægt að semja um greiðsluna?

Já, hægt er að gera greiðsluáætlun og lækka mánaðarlega greiðslubyrði.

Hægt er að ganga frá greiðsluáætlunum í sjálfsafgreiðslu á island.is að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Umsókn um greiðsluáætlun

Inn á hvaða bankareikning fer inneignin?

Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem er skráður. Hafi upplýsingar um bankareikning ekki verið veittar er einfalt að setja þær inn á Þjónustuvef Skattsins.


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum