Fréttir og tilkynningar


Lokaskiladagur skattframtals lögaðila er 1. október nk.

13.9.2021

Nú styttist í lokaskilafrest skattframtals lögaðila vegna rekstrarársins 2020, en álagning lögaðila fer fram 29. október nk.

Framtal 2021

Vakin er athygli á að lokaskiladagur lögaðila á skattframtali 2021 er 1. október nk. Ekki er tryggt að framtöl sem berast eftir skilafrest fái skoðun fyrr en eftir að álagning fer fram 29. október nk. og eru forsvarsmenn lögaðila hvattir til að senda framtöl inn sem allra fyrst.

Nánari upplýsingar um framtal og álagningu lögaðila 2021

Hnappurinn

Forsvarsmönnum örfélaga er sérstaklega bent á að kynna sér „Hnappinn“, en það er einföld og þægileg lausn fyrir smærri félög til að skila ársreikningi. Eftir að örfélag hefur skilað inn skattframtali er hægt að útbúa sjálfkrafa ársreikning sem byggður er á upplýsingum úr skattframtalinu.

Nánari upplýsingar um Hnappinn


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum