Fréttir og tilkynningar


Leyfisnúmer framleiðanda sjávarafurða sett í reit númer 44 á útflutningsskýrslu (ebl. E-2)

2.7.2012

Þann 1. september 2012 breytast reglur um frágang á útflutningsskýrslu (ebl. E-2) þegar um er að ræða útflutning á sjávarafurðum.

Í þeim tilfellum ber að tilgreina framleiðanda á Íslandi með því að skrá tiltekið leyfisnúmer hans í reit númer 44 á útflutningsskýrslunni ásamt viðeigandi leyfislykli. Þetta er gert að ósk Fiskistofu til að hægt sé að rekja sjávarafurð til síðasta vinnsluaðila á Íslandi.

Þann 2. júlí 2012 sendi Tollstjóri bréf til 372 útflytjenda og tollmiðlara til að kynna fyrirhugaðar breytingar.

Nýir tollskrárlyklar vegna framangreindra breytinga verða aðgengilegir á vef Tollstjóra frá og með 20. ágúst 2012. Útflytjendur og tollmiðlarar, sem stunda SMT-/EDI tollafgreiðslu, verða að setja upplýsingar um nýju tollskrárlyklana inn í hugbúnað sinn vegna tollskýrslugerðar fyrir 1. september 2012. Að öðrum kosti koma fram villur við tollafgreiðslu útflutningsskýrslna.

Nánari upplýsingar

Ýtarlegar upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar er að finna á vefsíðunni Leyfisnúmer framleiðanda sjávarafurða sett í reit númer 44 á útflutningsskýrslu (ebl. E-2).

Tollstjóri veitir að auki allar nánari upplýsingar um atriði, sem lúta að breytingum á útfyllingu útflutningsskýrslu. 
Fiskistofa veitir nánari upplýsingar um lagaheimildir, hugsanleg vafaatriði er tengjast skilgreiningum á framleiðanda, sem og önnur tengd atriði. 
Matvælastofnun veitir nánari upplýsingar um leyfisnúmer framleiðenda. 


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum