Fréttir og tilkynningar


Opnað fyrir skil á skattframtali einstaklinga 1. mars

18.2.2022

Opnað verður fyrir framtalsskil einstaklinga 2022, vegna tekna 2021, 1. mars nk. Lokaskiladagur er 14. mars.

Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is og ber öllum þeim sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2021 að skila skattframtali og telja fram tekjur sínar og eignir.

Boðið verður upp á að panta símtal og fá aðstoð við framtalsgerð í gegnum síma, en engin framtalsaðstoð verður í afgreiðslum Skattsins. 

Framtalsleiðbeiningar 2022 er tilbúnar og komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.

Skoða framtalsleiðbeiningar

Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.

Hvernig fæ ég rafræn skilríki?
Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 ára
Hvar má nálgast týndan veflykil?

Lendir þú í vandræðum með framtal þitt verður einnig hægt að hafa samband við framtalsaðstoð í síma 442 1414 eða senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is.

Hafa samband


Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum