Opnað verður fyrir framtalsskil einstaklinga 1. mars nk.
Framtalið verður aðgengilegt á þjónustuvef Skattsins, www.skattur.is frá og með 1. mars nk. og ber öllum sem náð hafa 16 ára aldri í lok árs 2022 að skila skattframtali og telja fram. Lokaskiladagur er 14. mars.
Boðið verður upp á að panta símtal og fá aðstoð við framtalsgerð í gegnum síma, en engin framtalsaðstoð verður í afgreiðslum Skattsins.
Framtalsleiðbeiningar 2023 er tilbúnar og komnar á vefinn ásamt bæklingi með einföldum framtalsleiðbeiningum þar sem stiklað er á stóru yfir það helsta sem einstaklingar þurfa að huga að við skil á skattframtali.
Notast þarf við rafræn skilríki eða veflykil til auðkenningar inn á þjónustuvefinn við innskráningu.
Hvernig fæ ég rafræn skilríki?
Rafræn skilríki fyrir ungmenni yngri en 18 ára
Hvar má nálgast týndan veflykil?
Lendir þú í vandræðum með framtal þitt verður einnig hægt að hafa samband við framtalsaðstoð í síma 442 1414 eða senda fyrirspurnir á netfangið framtal@skatturinn.is.